Dagsetningar
Innritun á haustönn 2025
Innritun eldri nema:
14.03.2025 til og með 26.05.2025
Innritun á starfsbrautir:
01.02.2025 til 28.02.2025
Innritun nýnema:
25.04.2025 til og með 10.06.2025
Opin hús á vorönn 2025
Starfsbraut MK – kynning á starfsbraut skólans fimmtudagur 23. janúar kl. 15:00 – 16:00.
Starfsbraut MS – kynning á starfsbraut skólans mánudagur 27. janúar kl. 14:00 – 16:00.
Starfsbraut MÍ – kynning á starfsbraut skólans miðvikudagur 29. janúar kl. 16:00 – 17:00.
Starfsbraut Kvennaskólans – kynning á starfsbraut skólans þriðjudagur 28. janúar kl. 14.00 – 16.00.
Menntaskóli í tónlist MÍT – föstudagur 28. febrúar klukkan 16:00 – 18:00.
Verzlunarskólinn – fimmtudagur 6. mars kl. 15, 16, 17 og 18.
Menntaskólinn við Hamrahlíð – fimmtudagur 6. mars kl. 17:00 – 18:30.
Borgarholtsskóli – þriðjudagur 18. mars klukkan 16.30 – 18.00.
Kvennaskólinn – miðvikudagur 19. mars kl. 17:00 og 19:00.
Fjölbrautaskólinn við Ármúla – fimmtudagur 20. mars kl. 16.30 – 18.00.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti – þriðjudagur 25. mars kl. 17.00 – 18.30.
Menntaskólinn við Sund – miðvikudagur 26. mars frá kl. 16.00 – 18.00.
Menntaskólinn á Ísafirði – miðvikudagur 26.mars kl. 11:00 – 13:30
Tækniskólinn – miðvikudagur 26. mars kl. 15.30 – 17.00.
Menntaskólinn í Reykjavík – fimmtudagur 27. mars kl. 17.00 – 18.30.
Menntaskólinn í Kópavogi – laugardagur 29. mars, nákvæm tímasetning auglýst síðar.
Skrúfudagur Véltækni- og Skipstjórnarskólinn – laugardagur 29. mars 13.00 – 16.00.
Fjölbrautaskólinn í Garðabæ – þriðjudagur 8. apríl, nákvæm tímasetning auglýst síðar.
Verkmenntaskólinn á Akureyri – þriðjudagur 29. apríl.
Þessar dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar – síðast uppfært 16.1.2025.
Upplýsingar um opin hús má finna á heimasíðum framhaldsskólanna.
Fjar- og dreifinám og nám í kvöldskóla
Innritun í fjar- og dreifnám og í kvöldskóla fer fram samkvæmt fyrirkomulagi sem einstakir framhaldsskólar auglýsa.
Allar nánari upplýsingar eru veittar í síma 514 7500 eða með því að senda tölvupóst á netfangið innritun@mms.is.
Upplýsingar um íslenska framhaldsskóla
Listi yfir skóla sem bjóða upp á starfsbrautir.
Applications for secondary schools – spring 2024
Rafræn innritun
Innritun í framhaldsskóla er rafræn, þ.e. sótt er um skólavist á netinu.
Hvaða aðstöðu þarf?
Nemendur þurfa nettengda tölvu og hægt er að fá aðstoð við innritun í grunnskólum og framhaldsskólum sé þess óskað.
Þarf að senda eitthvað með umsóknum?
Einkunnir úr 10. bekk og feril úr framhaldsskóla má finna undir flipanum „Námsferill“ í umsókninni. Vinsamlegast gangið úr skugga um að þær upplýsingar séu réttar. Ef þær eru ekki réttar eða tæmandi þarf umsækjandi að hafa samband við viðkomandi skóla og fá staðfestingu á loknum einingum og einkunnum og senda með umsókninni, rafrænt eða í pósti, til þess skóla sem sótt er um skólavist í. Vottorð eða aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill láta fylgja með umsókn skulu sendar með sama hætti, beint til viðkomandi skóla eða sem rafrænt fylgiskjal með umsókninni.