Spurt og svarað
Hvar sæki ég um framhaldsskóla?
Sótt er um á https://www.inna.is/framhaldsskolaumsokn/ og þar smellt á „Sækja um hér“. Nýnemar sækja þar sem stendur „Veflykill Menntagáttar“.
Ég er búin að týna veflyklinum mínum
Umsækjendur 17 ára og eldri nota Íslykil eða rafræn skilríki til að skrá sig inn. Íslykil er hægt að fá afhentan hjá Þjóðskrá gegn framvísun persónuskilríkja. Einnig er hægt að sækja um Íslykil rafrænt á www.island.is. Hægt er að velja um að fá hann sendan á lögheimili, sem tekur 2-3 virka daga eða í netbanka og skilar hann sér þangað innan fárra mínútna. Rafræn persónuskilríki er hægt að sækja um hjá viðskiptabanka.
Umsækjendur 16 ára og yngri og eiga ekki veflykil sem afhentur var í grunnskóla geta einnig sótt um Íslykil eða fengið forráðamann sinn til að sækja veflykil fyrir sig. Forráðamaðurinn fer þá inn í umsókn og notar til þess Íslykil eða rafræn skilríki. Þegar komið er inn í umsóknina er valinn flipinn “Veflyklar” vinstra megin á síðunni. Þegar hann er valinn kemur listi yfir börn forráðamanns á aldrinum 14-18 ára og veflyklar þeirra. Forráðamaður skrifar veflykilinn niður, skráir sig út úr kerfinu með því að velja “Útskráning” í valmyndinni til vinstri. Umsækjandinn sjálfur getur síðan farið inn í umsóknarformið og skráð inn kennitöluna sína og veflykil.
Hvar fylgist ég með hvernig umsóknin mín stendur?
Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar með því að fara inn í hana á umsóknarkerfið, með sama hætti og þegar sótt var um. Staða umsókna er almennt skilgreind með eftirfarandi hætti:
Staða umsókna hjá nýnemum (birtist ekki fyrr en öll hafa fengið að vita um skólavist):
Í vinnslu – umsókn enn í vinnslu
Samþykkt – skólavist samþykkt
Hafnað – skólavist hafnað
Staða umsókna hjá eldri nemendum:
Í vinnslu – umsókn enn í vinnslu
Samþykkt – skólavist samþykkt
Samþykkt í bið – umsókn samþykkt en það á eftir að senda út greiðsluseðil
Samþykkt í öðrum skóla – skólavist samþykkt í öðrum skóla en sótt var um
Hafnað – skólavist hafnað
Hafnað í bið – skólavist hafnað en skóli á eftir að ganga formlega frá neitun
Hvenær fæ ég að vita um skólavist?
Allir nýnemar fá að vita niðurstöðu innritunar á sama tíma, þ.e. seinnipart júní. Ekki er nein föst tímasetning fyrir niðurstöðu innritunar eldri nemenda og fá ekki allir svar á sama tíma.
Vegna þeirra sem fengu úthlutað í þriðja skóla eða hafa spurningar varðandi sína innritun:
– Starfsfólk miðstöðvar menntunar getur ekki breytt niðurstöðum einstakra nemenda, þar sem innritun er að öllu leyti á forræði framhaldsskólanna sjálfra.
– Nemendur geta sent fyrirspurn til skólanna sjálfra með beiðni um að vera á biðlista ef svo ólíklega vill til að einhver sem hefur fengið úthlutað plássi þiggur það ekki.
– Þó er vert að benda á að starfsfólk framhaldsskólanna er komið í sumarfrí og svör því ólíkleg fyrr en í ágúst.Hvernig finn ég námsferil minn?
Inni í umsókn kemur námsferill úr framhaldsskóla fram (eldri nemendur og 10. bekkur ef nemandi hefur tekið framhaldsskólaáfanga). Grunnskólaeinkunnir verða þó ekki sýnilegar nýnemum fyrr en undir lok innritunartímabils í júní. Eldri nemendur sjá grunnskólaeinkunnir þar inni líka. Ef eldri nemendur þurfa námsferil sinn, en eru ekki að sækja um í framhaldsskóla, þá er hægt að nálgast námsferil með því að fara inn á mínar síður inn á https://island.is
Farið er í flipann “Menntun” en þar er hægt að sjá yfirlit yfir námsferil úr framhaldsskóla. Athugið að gögnin ná einungis aftur til ársins 2001. Séu gögnin ekki rétt skal leita til viðkomandi skóla.
Einnig ef þú þarft staðfestan námsferil þá þarftu að leita til skólans.Hvað geri ég ef ég vil skipta um skóla?
Þetta á aðeins við eldri nemendur og þeir sækja þá um á umsóknartímabili eldri nemenda. Við ráðleggjum nemendum þó að segja ekki skólaplássinu sem þeir eru með lausu fyrr en þeir vita hvort þeir fá inni í þeim skóla sem þeir sækja um. Annars geta þeir lent í því að vera án skóla á nýrri önn.
Í sumum tilvikum eru skólar ekki búnir að afgreiða umsóknir áður en þarf að greiða skólagjöld í núverandi skóla og mælum við með að þau séu greidd til öryggis. Þau eru þó aldrei endurgreidd.
Sótt er um í gegnum umsóknarvef.
Hefur það áhrif á núverandi skólavist ef ég sæki um í öðrum skóla?
Nei, skólinn veit ekki af því ef nemandi sækir um í öðrum skóla, ekki fyrr en ef nemandinn lætur vita eða annar skóli hefur innritað hann.
Nemandi sem býr erlendis en vill fara í framhaldsskóla á Íslandi. Hvernig snýr viðkomandi sér í að sækja um?
Með sama hætti og aðrir. Ef forsjáraðili nýnema hefur íslensk rafræn skilríki eða Íslykil, getur hann farið inn í umsókn á sinni kennitölu og náð í veflykil nemandans. Ef fólk hefur aðgang að heimabanka hjá íslenskum banka getur það óskað eftir því á island.is að fá sendan Íslykil í heimabankann og farið inn í umsókn á honum. Það er þó líka hægt að sækja um Íslykil í gegnum sendiráðin erlendis. Ef allt um þrýtur getur nemandinn sent tölvupóst á innritun@mms.is úr eigin tölvupósti og óskað eftir veflyklinum.
Þegar umsókn er skilað er gott að hlaða upp nýjustu einkunnum sem nemandinn hefur fengið hjá skólanum sínum úti. Að loknum skilum mælum við með að haft verði samband við skólann/skólana og hann/þeir látinn/látnir vita af umsókninni. Svo þarf að fá upplýsingar um hvaða gögnum sé best að skila svo umsókninni verði ekki sjálfkrafa hafnað af því ekki eru nægar upplýsingar tiltækar.
Hvernig er skráningarferlið á starfsbrautir?
Umsóknartímabilið hefur verið 1.-28./29. febrúar sl. ár. Þegar umsóknarferlinu lýkur hefst vinna við að finna öllum nemendunum skólavist. Það getur tekið nokkurn tíma og því ekki hægt að segja til um hvenær þær niðurstöður liggi fyrir og skólarnir geti haft samband við umsækjendur til að bjóða þeim skólavist. Við reynum að klára þessa innritun sem allra fyrst, en þó er rétt að benda á að tímasetningar almennrar innritunar eiga við þessa innritun líka. Viðmið okkar er að allir nýnemar séu komnir með skólapláss þegar niðurstöður almennrar innritunar eru birtar.
Villumelding þegar reynt er að setja inn fylgiskjal með umsókn?
Prófið að endurnefna skjalið án þess að nota séríslenska stafi.